Fréttir

Kveðja til Reynis
Knattspyrna | 28. ágúst 2015

Kveðja til Reynis

Knattspyrnufélagið Reynir í  Sandgerði fagnar 80 ára afmæli sínu um þessar mundir.  Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur í gegnum árin átt gott samstarf við Reynismenn eins og önnur nágrannafélög okkar.  Margir leikmenn hafa leikið fyrir bæði félögin og þá hafa nokkrir þjálfarar komið við sögu hjá þessum tveimur félögum.

Knattspyrnudeild Keflavíkur sendir Reyni innilegar hamingjuóskir á þessum merku tímamótum.