Fréttir

Keflavík - Þór á laugardag kl. 14:00
Knattspyrna | 16. september 2016

Keflavík - Þór á laugardag kl. 14:00

Þá er komið að síðasta heimaleik sumarsins en á laugardaginn koma Þórsarar í heimsókn.  Leikurinn verður kl. 14:00 á Nettó-vellinum.  Fyrir leikinn er Keflavík í 3. sæti deildarinnar með 33 stig en Þór í því 4. með 32 stig.  Þó að það sé ekki að miklu að keppa þá má þó segja að þriðja sætið í deildinni sé í húfi í þessum leik.  Dómari leiksins verður Einar Ingi Jóhannsson, aðstoðardómarar hans eru Þórður Arnar Árnason og Hörður Aðalsteinsson og Einar Örn Daníelsson verður svo eftirlitsmaður KSÍ.