Fréttir

Juraj til Keflavíkur
Knattspyrna | 27. mars 2017

Juraj til Keflavíkur

Keflavík hefur samið við Króatíska leikmanninn Juraj Grizelj um að spila með þeim í Inkasso-deildinni í sumar.  Juraj kom fyrst til Íslands 2013 og spilaði 44 leiki með Grindavík tímabilin 2013-2014 og skoraði í þeim 21 mark í deild og bikar.  Árin 2015-2016 spilaði hann 41 leik með KA í deild og bikar og skoraði 9 mörk með þeim í deild og bikar en hann var einnig iðinn við að leggja upp fyrir samherja sína og hafa ótal mörkin komið eftir sendingar frá honum.  Keflavík býður Juraj velkomin til SunnyKef.

Juraj ánægður með að ná samning við Keflavík