Fréttir

Íslandsmeistararnir í heimsókn á laugardaginn
Knattspyrna | 10. júní 2016

Íslandsmeistararnir í heimsókn á laugardaginn

Íslandsmeistarar Breiðabliks mæta á Nettó völlinn í Keflavík laugardaginn 11. júní, í 16 liða úrslitum Borgunarbikarsins. Það má búast við erfiðum leik hjá Keflavíkurstúlkum, en jafnframt spennandi verkefni sem stúlkurnar fá að takast á við. Leikurinn hefst kl. 14:00 og eru Keflvíkingar og aðrir Suðurnesjamenn hvattir til að mæta á völlinn og hvetja stúlkurnar.