Fréttir

Gunnar Magnús þjálfar kvennaliðið
Knattspyrna | 3. október 2015

Gunnar Magnús þjálfar kvennaliðið

Gunnar Magnús Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari meistarflokks kvenna til næstu tveggja ára.  Eins og stuðningsmenn Keflavíkur vita hefur Gunnar verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla.

Gunnar Magnús er auðvitað Keflvíkingur í húð og háð og fyrrverandi leikmaður félagsins.  Hann hefur lengi starfað við þjálfun yngri flokka hjá Keflavík.  Þá þjálfaði Gunnar meistaraflokk kvenna hjá Grindavík um árabil og lið Njarðvíkur á árunum 2011-2013. 

Við bjóðum Gunnar velkominn í nýja starfið og óskum honum góðs gengis.

Á myndinni með fréttinni handsala þeir samninginn, Gunnar Magnús og Þorsteinn Magnússon formaður Knattspyrnudeildar.