Fréttir

Grill, músik og stemmning fyrir leik
Knattspyrna | 30. júlí 2014

Grill, músik og stemmning fyrir leik

Eins og venjulega verður spjall og grill í félagsheimilinu okkar fyrir leikinn gegn Víkingum   Við minnum á að kveikt verður upp í grillinu kl. 17:30 að þessu sinni en leikurinn byrjar kl. 19:15 á Nettó-vellinum.

Keflavík hefur ekki spilað leik í undanúrslitum bikarsins á heimavelli síðan 1997.  Þau skipti sem við höfum komist í undanúrslitin síðan þá hefur verið leikið á Laugardalsvelli.

Það er upplagt að kíkja við í félagsheimilinu og skella í sig hamborgara og upplifa stemmninguna þar fyrir leik.  Við fáum stuðningsmenn Víkinga í heimsókn og hitum upp saman fyrir leikinn.  Synir Rúnna Júll, þeir Baldur og Júlíus, spila einnig nokkur lög fyrir stuðningmenn í félagsheimilinu fyrir leik.

PADDY´S Irish pub býður öllum stuðningsmönnum í Happy Hour frá kl 16.00 til 19:00 en þar verða einnig miðar seldir á leikinn.

Við hvetjum alla okkar stuðningsmenn að mæta í svörtu eða bláu.