Fréttir

Vilt þú gerast meðlimur í Hraðlestinni?
Karfa: Hitt og Þetta | 6. október 2014

Vilt þú gerast meðlimur í Hraðlestinni?

Nú styttist í að tímabilið í Domino´s deild karla og kvenna hefjist og því viljum við vekja athygli ykkar á stuðningsmannaklúbb Keflavíkur, "Hraðlestinni". Þeir sem hafa áhuga á því að gerast meðlimir kíkið endilega á þær upplýsingar sem koma fram hér að neðan og hafið samband;

Hvað er í boði fyrir meðlimi Hraðlestarinnar?
1. Ársmiði í þitt eigið númeraða sæti í TM-Höllinni á alla leiki vetrarins í Domino´s deild karla og kvenna og bikarkeppni KKÍ.
2. Veitingar í hálfleik á öllum leikjum meistaraflokks karla og valda leiki meistaraflokks kvenna.
3. Miði á lokahóf KKDK þar sem boðið er upp á mat og skemmtiatriði.
4. Miði á stuðningsmannakvöld?
5. Þáttaka í leikhlutaskotum, s.s. Pepsi-skotið og Sambíó-skotið.

Verð: 3500 kr. á mánuði í 12 mánuði.

Ef þú hefur áhuga eða vilt afla þér frekari upplýsinga þá getur þú haft samband við neðangreinda aðila;
Sigurður Markús, s: 6699261 - siggimarkus@gmail.com e
ða Sævar, s: 8691926 - saevar@keflavik.is

Athugið að þeir sem eru þegar meðlimir þurfa ekki að skrá sig á ný heldur er litið svo á að þeir séu áframhaldandi meðlimir nema óskað sé annars...