Fréttir

Skráning hafin - Allir í körfu
Karfa: Yngri flokkar | 26. ágúst 2014

Skráning hafin - Allir í körfu

Opnað hefur verið fyrir rafræna skráningu iðkenda á keflavik.is/karfan og munu æfingar allra flokka Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur hefjast samkvæmt æfingatöflu mánudaginn 1. sept.

Fyrir þá sem óska aðstoðar við skráningu verða meðlimir Barna- og unglingaráðs til taks í Íþróttahúsi Keflavíkur 2. hæð n.k. þriðjudag 2. sept. milli kl. 17-20ATH. að allir iðkendur verða að vera skráðir.

Æfingatöfluna má nálgast hér.

Þjálfarar deildarinnar verða kynntir til leiks fljótlega á heimasíðunni.  

ALLIR nýir iðkendur deildarinnar fá frían keppnisbúning (treyja og stuttbuxur).

ALLIR skráðir iðkendur í yngri flokkum félagsins fá frítt á leiki meistaraflokksliða félagsins.

ÁFRAM verður boðið upp á frábærar morgun-/aukaæfingar tvisar í viku fyrir 8. bekk og eldri og hefjast þær æfingar í byrjun oktober.

Allir flokkar munu æfa í 9. mánuði en gjaldskrá er skv. eftirfarandi:

1. og 2. bekkur                 kr. 33.300 (3.700 pr. mán)            2 æfingar  í viku

3. og 4. bekkur                 kr. 38.700 (4.300 pr. mán)            3 æfingar í viku

5. og 6. bekkur                 kr. 44.100 (4.900 pr. mán)            4 æfingar í viku

7. flokkur  og eldri           kr. 48.600 (5.400 pr. mán)            4-5 æfingar í viku

Veittur er systkinaafsláttur sem er þannig að elsta systkini greiðir fullt gjald en önnur hálft: