Fréttir

Marín og Sandra leika með Landsliðinu
Körfubolti | 25. nóvember 2015

Marín og Sandra leika með Landsliðinu

Tveir leikmenn Keflavíkur standa vaktina í liði Íslands fyrir leikinn gegn Slóvakíu en leikið verður á miðvikudagskvöldið 25. nóvember kl 19:30 í Laugardalshöllinni.

Þær Sandra Lind Þrastardóttir og Marín Laufey Davíðsdóttir, lykil leikmenn Keflavíkurliðsins, eru í landsliðshópnum. Landsliðið er að kljást við krefjandi og skemmtileg verkefni þessi misseri en leikurinn er partur af undankeppni EM. Tveggja vikna hlé var gert á Dominosdeild Kvenna meðan á þessu landsleikjaverkefni stendur, en fjölmargir leikmenn landsliðsins leika einmitt í Dominosdeildinni.

Við hvetjum alla til að leggja leið sína í Laugardalinn og styðja landsliðið okkar til dáða, frítt verður inn fyrir 16 ára og yngri og 1.500 kr. kostar inn fyrir þá sem eldri eru.

Áfram Ísland!