Fréttir

Marín Laufey nýr leikmaður Keflavíkur
Karfa: Konur | 17. apríl 2014

Marín Laufey nýr leikmaður Keflavíkur

Keflavíkurstúlkur hafa fengið gríðarlegan liðsstyrk fyrir næsta tímabil í Domino´s deild kvenna en hin 18 ára Marín Laufey Davíðsdóttir hefur samið við félagið til tveggja ára. Marín Laufey, sem leikið hefur með Hamri sl. ár, er mikill baráttujaxl og mun hún sannarlega koma til með að styrkja Keflavíkurliðið mikið, þá sérstaklega varnarlega og í frákastabaráttunni undir körfunni. Á nýafstaðinni leiktíð skoraði Marín Laufey 12 stig að meðaltali í leik auk þess sem hún reif niður 11 fráköst.

Stjórn Keflavíkur er gríðarlega ánægð með þennan mikla liðsstyrk en Keflavík væntir mikils af Marínu á komandi árum.

Áfram Keflavík!