Fréttir

Maltbikarinn
Karfa: Yngri flokkar | 9. febrúar 2017

Maltbikarinn


Keflavík með fjögur lið í úrslitum í Maltbikarnum 2017.

Framundan í vikunni og um helgina er Maltbikarhelgin 2017 þar sem úrslitaleikir í bikarkeppni KKÍ, Maltbikarnum, verða háðir í Laugardalshöll. 

Glæsileg umgjörð verður í Höllinni frá miðvikudegi til sunnudags þar sem verður leikið við bestu aðstæður í öllum flokkum.
8 leikir verða í beinni á RÚV og verða 5 yngri flokka leikir allir sýndir beint á ruv.is á netinu.

Miðasala á alla leiki meistaraflokkanna fer fram á tix.is hérna en selt er inn á hvern leik fyrir sig (húsið rýmt milli leikja í undanúrslitum og úrslitum).

Hvetjum alla til að koma og styðja við bakið á stúlkunum okkar.
Áfram Keflavík.


Dagskráin:

Miðvikudagur 8. febrúar
Kl. 17.00 · Undanúrslit kvenna · Keflavík-Haukar             RÚV komnar í úrslit.
Kl. 20.00 · Undanúrslit kvenna · Skallagrímur-Snæfell      RÚV2 Skallagrímur í úrslit.

Fimmtudagur 9. febrúar
Kl. 17.00 · Undanúrslit karla · Valur-KR                                   RÚV
Kl. 20.00 · Undanúrslit karla · Þór Þ.-Grindavík                       RÚV2

Föstudagur 10. febrúar
Kl. 18:00 · 10. flokkur stúlkna · Keflavík-Njarðvík              ruv.is
Kl. 20:00 · Drengjaflokkur · KR-Stjarnan                                  ruv.is

Laugardagur 11. febrúar
Kl. 13:30 · Úrslitaleikur kvenna · Keflavík - Skallagrímur  RÚV
Kl. 16:30 · Úrslitaleikur karla · Sigurvegarar undanúrslitanna  RÚV

Sunnudagur 12. febrúar
Kl. 09:45 ·  9. flokkur drengja · Valur-Vestri                             ruv.is
Kl. 11:45 · 10. flokkur drengja · Þór Ak.-Stjarnan                    ruv.is
Kl. 13:45 · Unglingaflokkur kvenna · Keflavík-Haukar      RÚV
Kl. 16:00 · Unglingaflokkur karla · Tindastóll-KR RÚV
Kl. 18:15 ·  9. flokkur stúlkna · Grindavík-Keflavík            ruv.is

#maltbikarinn