Fréttir

Keflavíkurstelpurnar í Höllina
Körfubolti | 20. janúar 2017

Keflavíkurstelpurnar í Höllina

Keflavíkurstelpurnar, einnig þektar sem "litlu slátrararnir" af fjölmiðlum landsins áttu frækinn sigur á nágrönnum okkar úr Grindavík þegar þær tryggðu sér sæti í undanúrslitum Maltbikarsins. Þar verður andstæðingurinn Haukar úr Hafnafirði en leikið verður í sjálfri Laugardalshöllinni. 

Undanúrslitleikurinn verður miðvikudaginn 8. febrúar kl 17:00 og sigurvegarar þar fá svo að mæta aftur í höllina þann 11. febrúar þegar sjálfur úrslitaleikurinn fer fram.

Laugardaginn 20. janúar næstkomandi kl 15:30 er hinsvegar næsti leikur hjá stelpunum þar sem þær fá aftur grannana úr Grindavík í heimsókn. Miðasala á Bikarleikinn mun hefjast á sama tíma og geta stuðningsmenn tryggt sér miða í íþróttahúsinu við Sunnubraut þegar þeir mæta á leikinn gegn Grindavík. Áhugasamir geta einnig verið í sambandi á Facebook síðu Keflavíkur

Sjáumst á Laugardaginn
Áfram Keflavík