Fréttir

Keflavík semur við unga leikmenn
Körfubolti | 10. ágúst 2016

Keflavík semur við unga leikmenn

Þrír ungir leikmenn skrifuðu undir tveggja ára samning við Körfuknattleiksdeild Keflavíkur á dögunum. Þeir Arnór Sveinsson (fæddur 2000), Elvar Snær Guðjónsson (fæddur 2000) og Þorbjörn Óskar Arnmundsson (fæddur 1999) eru ungir og efnilegir leikmenn sem hafa allir leikið með yngri landsliðum Íslands. Strákarnir munu koma til með að styrkja bæði sig og Keflavík í vetur. Við bjóðum þá hjartanlega velkomna í hópinn og slaginn næstu tvö ár.
 
Áfram Keflavík!
 

Þorbjörn Óskar Arnmundsson og Ingvi Hákonarson, formaður KKDK
 
 

Elvar Snær Guðjónsson og Ingvi Hákonarson, formaður KKDK
 
 

Arnór Sveinsson og Ingvi Hákonarson, formaður KKDK