Fréttir

Gunnar Einarsson nýr aðstoðarþjálfari
Karfa: Karlar | 9. október 2016

Gunnar Einarsson nýr aðstoðarþjálfari

Stjórn KKDK og Gunnar Einarsson hafa gert með sér samkomulag um að Gunnar taki að sér að vera aðstoðarþjálfari hjá mfl. karla út tímabilið. 

Gunnar er þekkt stærð í Keflavík og er margfaldur Íslands- og bikarmeistari með félaginu. Bæði sem leikmaður og einnig fyrirliði liðsins.

Þetta er önnu gleði fréttin þessa helgina, en fyrir helgi samdi Hörður Axel Vilhjálmsson við Keflavík og mun leika með liðinu.

Næsti leikur Keflavíkur er á föstudaginn 14. október þegar strákarnir heimsækja Þór Þ heim.