Fréttir

Guðmundur Jónsson framlengir við Keflavík
Körfubolti | 9. maí 2016

Guðmundur Jónsson framlengir við Keflavík

Keflavík hefur náð samkomulagi við Guðmund Jónsson og mun hann leika áfram með félaginu næstu tvö árin. Guðmundur gekk til liðs við Keflavík árið 2013 og hefur verið einn af helstu máttarstólpum liðsins allar götur síðan. Guðmundur er mikill leiðtogi í Keflavíkurliðinu og býr yfir mikilli, verðmætri reynslu en hann er einn besti varnarbakvörður og með betri þryggjastigaskyttum landsins.

 

Keflvíkingar eru gríðarlega ánægðir með að hafa tryggt sér veru Guðmundar fram til ársins 2018 og hlökkum við mikið til að vinna áfram með honum næstu árin.