Fréttir

Vel heppnaðar æfingabúðir SSÍ
Sund | 20. október 2014

Vel heppnaðar æfingabúðir SSÍ

Síðasta laugadag hélt Sundsamband Íslands æfingabúðir fyrir landsliðsfólk í sundi. Öllum sundmönnum sem tóku þátt í landsliðsverkefnum 2013-2014 var boðið. 

Byrjað var á sameiginlegum hádegisverði og fyrirlestri þar sem Eyleifur Jóhannsson ræddi við sundfólkið um ýmislegt varðandi íþróttina. Eyleifur sem valinn hefur verið tvö ár í röð þjálfari ársins í Danmörku var staddur hér á landi með sundlið sitt úr Aalborg Svommeklub í æfingabúðum.

Eftir fyrirlesturinn tók við æfing í Laugardalslaug með Eyleifi og Jacky Pellerin landsliðsþjálfara. 

ÍRB átti myndarlegan hóp á æfingunni en 14 sundmenn af 41 sem var boðið á æfinguna voru sundmenn okkar. 

Sundmenn ÍRB sem tóku þátt í æfingunni voru:

Kristófer Sigurðsson
Erla Sigurjónsdóttir
Baldvin Sigmarsson
Þröstur Bjarnason
Birta María Falsdóttir
Íris Ósk Hilmarsdóttir
Svanfríður Steingrímsdóttir
Sylvia Sienkewich
Sunneva Dögg Friðriksdóttir
Karen Mist Arngeirsdóttir
Eydís Ósk Kolbeinsdóttir
Gunnhildur Björg Baldursdóttir
Stefanía Sigurþórsdóttir