Fréttir

Sumarmótið skemmtilegur endir á tímabilinu
Sund | 14. júlí 2014

Sumarmótið skemmtilegur endir á tímabilinu

Eins og undarfarin ár var sumarmótið bæði góður og nauðsynlegur endir á tímabilinu hjá elstu sundmönnum ÍRB. Fjöldi bætinga á mótinu var ótrúlegur og sumir tímanna alveg mjög góðir. 

Flestir elstu sundmannanna mættu á mótið og við fengum að sjá spennandi keppni á köflum. 

Sundfólkið fór heim brosandi og endaði árið á mjög jákvæðan hátt. 

Takk allir sem tóku þátt í undirbúningi og vinnu á mótinu og til hamingju sundmenn með flottan árangur!

Sjáumst öll á nýju sundári!

Úrslit:

25 m laug

50 m laug