Fréttir

Næring og árangur á mótum
Sund | 11. nóvember 2014

Næring og árangur á mótum

Erla Sigurjónsdóttir sundkona ÍRB skrifaði þennan pistil eftir bikarmótið og okkur fannst góð hugmynd að birta hann hér.

Hæhæ Ég var beðin um að skrifa hér eftir góðan árangur minn þessa helgi. Ég heiti Erla og var fyrirliði 1. deildar kvennaliðsins á Bikar. Þetta er annað árið í röð sem við vinnum þetta mót og þetta er algjörlega uppskera erfiðis hjá öllum sem lögðu sitt að mörkum síðustu tvo daga. Ég ætla aðeins að tala hér um hvað næring hefur verið mikilvægur þáttur í árangri mínum þessa helgi. Ég synti 3 greinar þetta mót og bætti tímana mína í þeim öllum. Þegar maður er orðin 19 ára þá er ekkert sjálfsagt mál að bæta sig í aðalgreinunum sínum og yfirleitt gerist það bara á Íslandsmeistaramótunum. Fyrsta mánuð æfinga var ég að mestu leiti fjarverandi vegna vinnu. Eftir það kom heil vika af veikindum. Ég hef því aðeins náð að æfa af einhverri alvöru í 5 vikur. Á 5 vikum komst ég í það gott form að ég var að bæta mig í aðalgreinunum mínum. Ég er sprettsundsmanneskja og einhvern veginn tókst mér samt að bæta mig í 50 flug þegar ég synti 100 flug. Þetta er eitthvað sem hefur aldrei gerst við mig.


Ég ákvað að prufa næringarprógrammið sem Anthony kynnti fyrir nokkrum vikum og ég er ekki frá því að það hafi verið að hjálpa mér. Ég hafði ekki mikla trú á þessu fyrst en ég ákvað að prufa þar sem þetta gat verið eitthvað sem hjálpaði mér. Ég sé allavega ekki eftir því að hafa gefið þessu séns. Ég fylgi þessu prógrammi eins vel og ég get þótt það séu auðvitað alltaf einhver smá svindl. Ég reyni að borða sem minnst af nammi og kexi og passa mig að borða alltaf fyrir og eftir æfingar og nóg yfir daginn. Ég finn alveg fyrir mun á sjálfri mér, það byrjaði sem aukinn styrkur í þreki en hefur nú færst yfir í laugina. Þetta hjálpaði mér að komast í mun betra form á styttri tíma. Algjörlega þess virði að prufa ef þið hafið verið að pæla í þessu :D

 

Kristófer Sigurðsson, sem nýlega náði B lágmarki á Heimsmeistaramótið í Doha og er nú að æfa með það markmið að ná A lágmarki hafði þessu við að bæta:


Ég verð að vera sammála Erlu um þetta. Mataræðið skiptir gríðarlega miklu máli ef maður ætlar að standa sig, ekki bara í lauginn heldur í öllu sem við gerum.

En ef það er eitthvað sem ég myndi taka út úr mataræðinu mínu til þess að ná langt í sundi þá er það sælgætið. Maður finnur þvílíkan mun.