Fréttir

Matsdagur fyrir nýja sundkrakka á laugardaginn
Sund | 26. ágúst 2014

Matsdagur fyrir nýja sundkrakka á laugardaginn

Nú eru allir hópar í sundinu byrjaðir eftir sumarfrí og sífellt bætist í hópinn. Við bjóðum nýja sundkrakka velkomna. Til þess að allir fái hóp við hæfi þarf að koma á prufuæfingu/mat sem fer fram í Vatnaveröld. Laugardaginn 30. ágúst verður matið frá 12:30-13:30. Í september og fram í október verður matið kl. 12:15.
 
Æfingataflan er að mestu eins og síðasta vetur en þó hafa orðið lítilsháttar breytingar á henni svo við biðjum foreldra að skoða hana vel:  Æfingatafla
 
Leiðbeiningar fyrir skráningu má sjá á heimasíðunni undir Vertu með