Fréttir

Jólamót í dag
Sund | 30. nóvember 2016

Jólamót í dag

Hið árlega jólamót ÍRB fer fram í Vatnaveröld í dag, miðvikudaginn 30. nóv. Mótið er fyrir sundmenn í Sprettfiskum og upp í Afrekshóp.

Upphitun hefst kl. 17:30 og mótið byrjar kl. 18:00 eingöngu er keppt í 25m greinum.

Þáttökuverðlaun fyrir 10 ára og yngri og allir þátttakendur fá mandarínu.

Enn vantar riðlastjóra, þul, fólk í að ganga frá eftir mót og ljósmyndara. Skráning hér: https://docs.google.com/spreadsheets/d/1JRSCin1P9NOjRHZxRTBwVPcAX4OTuBDNGTb5I2xfjMk/edit?usp=sharing

Þá verður okkar árlega jólakökuhlaðborð í lok móts og foreldrar eru beðnir um að skrá hvað þeir koma með á hlaðborðið. Athugið að þetta er samvinnuverkefni. Þeir sem taka þátt eru með í boðinu. Þetta er ekki hugsað að nokkrir skaffi fyrir alla hina. Skráning hér: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLScFlskoRmmt5Tu3YUCr7w7sTl1yKKTZoW4HActZyQl6_OOoGw/viewform?c=0&w=1 

Mótaskrá 

Tímaáætlun