Fréttir

Góður árangur sundmanna ÍRB í Danmörku
Sund | 23. janúar 2018

Góður árangur sundmanna ÍRB í Danmörku

Sundmenn ÍRB stóðu sig vel á alþjóðlegu sundmóti, Lyngby Open í Danmörku. Sundfólkið vann til alls fimm verðlauna á mótinu. Þeir sem unnu til verðlauna voru:

Karen Mist Arngeirsdóttir: 200m bringusund 1. sæti, 100m bringusund 1. sæti og 50m bringusund 3. sæti.

Eydís Ósk Kolbeinsdóttir: 400m fjórsund 2. sæti

Gunnhildur Björg Baldursdóttir 2. sæti 200m flugsund.

Mótið er fyrsta mótið á árinu og gefur þjálfaranum smá innsýn í hver staðan sé þegar keppnistímabilið í 50m laug sé að hefjast. Sundtímabilið skiptist í tvö tímabil hjá íslensku sundfólki, 25m laugin fyrir áramót og 50m laugin eftir áramót og fram í júlí. Samkvæmt þessum úrslitum er staðan á liðinu góð og bjart framundan.