Fréttir

Aðventumót 25. nóvember
Sund | 24. nóvember 2015

Aðventumót 25. nóvember

Miðvikudaginn 25. nóvember verður Aðventumót ÍRB. Upphitun hefst kl. 17:00 og mót kl. 17:30. Mótið er fyrir alla sundmenn í Sprettfiskum, Flugfiskum, Sverðfiskum, Háhyrningum, Framtíðarhópi, Afrekshópi og Keppnishópi.

Keppt verður í 25m greinum og mótið er snöggt og skemmtilegt.
 
 
 
Í byrjun mótsins eða milli 17.30 og 18 verður hægt að skoða og panta (það sem til er á lager) ÍRB búninga. Stuttbuxur 4.000-, stuttermabolir 5.600-, langermabolir 6.500- og hettupeysur 7.900-.  Verður í anddyrinu.

Í lok móts ætlum við foreldrar að sameinast í að vera með hlaðborð að venju. Allir sem eiga sundmann á mótinu koma með eitthvað gott á hlaðborðið.
 
Athygli skal vakin á því að hlaðborðið er hugsað fyrir þá sem taka þátt í að koma með eitthvað á borðið.

Vinsamlega skráið hér nafn sundmanns/manna og hvað hver fjölskylda kemur með á hlaðborðið á miðvikudaginn. Við óskum eftir að allir komi með eitthvað svo úr verði hið fínasta hlaðborð fyrir sundmenn og fjölskyldur þeirra. Þannig getum við átt góða stund saman á milli 19:00 og 20:00 miðvikudaginn 25. nóvember.

Allir að skrá sig hér á hlaðborðið:
https://docs.google.com/forms/d/1fzuZszd6KwHqUlspuWXGptDk7IIN-8XHwR6x5LA_9YA/viewform