Fréttir

Páskamót Vesturrastar
Skotdeild | 15. apríl 2014

Páskamót Vesturrastar

Páskamót Vesturrastar verður haldið á Laugardaginn 19. apríl uppi á skotsvæði Skotdeildar Keflavíkur. Mæting er klukkan 09:30 og hefst mótið stundvíslega klukkan 10:00.

Skotið verður í liggjandi stöðu, má nota tvífót. Fram og bakrest eru ekki leyfileg.
Skotið er 2x 5x á 100 metrana og 2x 5x á 200 metrana.
Eingöngu rifflar með léttu hlaupi.

Allir velkomnir: Skráning á staðnum. 1.000 kr fyrir félagsmenn og 1.500 kr fyrir utanfélagsmenn.
 

Vegleg verðlaun frá Vesturröst eru í boði fyrir 3 efstu sætin.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Kveðja Kúlunefndin.