Fréttir

Opinn dagur  fimmtudaginn á Ljósanótt
Skotdeild | 18. ágúst 2015

Opinn dagur fimmtudaginn á Ljósanótt


Við verðum með opinn dag á fimmtudaginn 03. september fyrir alla þá sem vilja koma og kynna sér starfsemi Skotdeildarinnar og fá að prófa að skjóta leirdúfur og í mark á milli klukkan 16:00 til 20:00. Allar helstu skotgreinar verða kynntar og farið verður yfir unglingastarfsemina sem Skotdeildin er með í gangi, og hægt verður að skrá þá unglinga sem vilja æfa í haust. En það er vert að geta þess að unglingar greiða hvorki félags né æfingargjöld og á föstum æfingum í loftgreinum eru unglingar ekki að greiða fyrir skot né skífur. Vonumst eftir að sjá sem flesta, vana, óvana og áhugasama.


Kveðja Stjórn Skotdeildar Keflavíkur.