Fréttir

Minnum á ZEISS Tófuna 2016
Skotdeild | 20. maí 2016

Minnum á ZEISS Tófuna 2016

Kæru félagsmenn og aðrir skotfimiáhugamenn, við viljum minna á mótið á sunnudaginn kemur ZEISS TÓFAN 2016. Mótið hefst stundvíslega klukkan 09:30 og er mæting hjá þeim riðli kl 09:00.

Alls 31 keppendur eru skráðir á langstæðsta Tófumótið sem haldið hefur verið til þessa og er næstum fullt í 4. riðillinn.

1. riðill hefst kl 09:30 mæting 09:00
2. riðill hefst kl 10:30 mæting 10:00
3. riðill hefst kl 11:30 mæting 11:00
4. riðill hefst kl 12:30 mæting 12:00

Eins og áður hefur komið fram eru vegleg verðlaun í boði HLAÐ fyrir 1. sæti.

Hlökkum til að sjá ykkur, veðrið virðist ekki ætla að skemma stemninguna sem er að skapast fyrir þetta stórglæsilega mót. Sjáumst hress!