Fréttir

Félagsgjöld 2015
Skotdeild | 10. mars 2015

Félagsgjöld 2015

Til félagsmanna Skotdeildar Keflavíkur.

 

Nú hafa innheimtukröfur félagsgjalda fyrir árið 2015 verið sendar út. Hækkun félagsgjalda úr 8000 í 9000 skýrist af því að aðalfundur deildarinnar samþykkti hækkun um 1000kr á milli ára.

 

Hafi menn sem eru félagsmenn EKKI fengið kröfu í heimabanka þá er þeim bent á að hafa samband með tölvupósti á skot@keflavik.is

 

Áætlað er að halda að minnsta kosti 2 lykladaga í Reykjavík á næstunni, en tímasetningar hafa ekki verið nelgdar niður en við birtum þær hér eins fljótt og hægt er.

 

Minnum einnig á Facebook síðu Deildarinnar Skotdeild Keflavikur en þar eru allar fréttir einnig birtar.

 

Bestu kveðjur

Stjórnin