Fréttir

BR50 mót 20. júlí
Skotdeild | 15. júlí 2014

BR50 mót 20. júlí

Haldið verður innan félags BR-mót í 22 cal á sunnudaginn 20. júlí.

Skotið verður 50 skotum á 50 metrana eins og vanalega. Mótagjöld eru 1.000 kr. Endilega komið sem flest og takið þátt í skemmtilegu móti, skráning verður á staðnum. Mæting er klukkan 16:30 og hefst svo mótið stundvíslega klukkan 17:00 

 

Kveðja Kúlunefndin.

Viðbót: Vil endilega benda mönnum á að mæta tímanlega, því við ætlum prufa hafa svipað fyrirkomulag og er í 300m þar sem dregið er um á hvaða braut menn skjóta af.