Fréttir

BR50 mót 17. ágúst
Skotdeild | 9. ágúst 2014

BR50 mót 17. ágúst

Haldið verður innan félags BR-mót í 22 cal á sunnudaginn 17. ágúst.
Skotið verður 50 skotum á 50 metrana eins og vanalega. Mótagjöld eru 1.000 kr. Endilega komið sem flest og takið þátt í skemmtilegu móti. Mæting er klukkan 09:30 og hefst svo mótið stundvíslega klukkan 10:00 
Sama fyrirkomulag verður á mótinu og var á síðasta móti þar sem dregið verður um á hvaða braut menn skjóta af.
 
Kveðja Kúlunefndin.