Knattspyrna

Knattspyrna | 12.08.2012
Mfl. karla: Keflavík - ÍA á Nettó-vellinum

Sunnudaginn 12. ágúst leika Keflavík og ÍA í 15. umferð Pepsi-deildarinnar.  Leikur liðanna fer fram á Nettó-vellinum í Keflavík og hefst kl. 19:15.

Liðin mættust í deildinni fyrr í sumar og þá á heimavelli Skagamanna sem unnu 3-2 í hörkuleik.  Guðmundur Steinarsson og Arnór Ingvi Traustason skoruðu fyrir Keflavík en Gary Martin, Ólafur Valur Valdimarsson og Garðar Gunnlaugsson gerðu mörk heimamanna.