Lokahóf yngri flokka
Lokahóf yngri flokka knattspyrnudeildar Keflavíkur verður haldið laugardaginn 20. september kl. 11:00-13:00 í íþróttahúsinu við Sunnubraut. Veitt verða verðlaun og boðið upp á veitingar. Allir iðkendur og foreldrar þeirra eru hvattir til þess að mæta.