Fréttir

Unglingadómaranámskeið 21. apríl
Knattspyrna | 16. apríl 2015

Unglingadómaranámskeið 21. apríl

Unglingadómaranámskeið Knattspyrnudeilda Keflavíkur og Njarðvíkur verður haldið þriðjudaginn 21. apríl.  Námskeiðið verður haldið í Íþróttaakademíunni beint á móti Reykjaneshöllinni og hefst kl. 20:00.  Allir þeir sem hafa skráð sig á námskeiðið eru hvattir til þess að mæta vel.

Þetta námskeið er opið öllum þeim sem hafa áhuga á því að læra knattspyrnulögin og viljum við skora á sem flesta að mæta, stelpur, stráka og foreldra.

Námskeiðið er ókeypis.

Bestu kveðjur,
Starfshópurinn „Betri dómgæsla í Reykjanesbæ“