Fréttir

Þorrablótið verður 16. janúar
Knattspyrna | 19. nóvember 2015

Þorrablótið verður 16. janúar

Hið margrómaða og vinsæla þorrablót Keflavíkur verður haldið í íþróttahúsinu við Sunnubraut þann 16. janúar.  Blótið hefur verið mjög vinsælt undanfarin ár og færri komast að en vilja.  Miðapantanir eru hafnar og við hvetjum stuðningsmenn til að mæta, skemmta sér með góðu fólki og styðja um leið við starf félagsins.