Fréttir

Takk fyrir 2014!
Knattspyrna | 31. desember 2014

Takk fyrir 2014!

Við þökkum samfylgdina á árinu sem er að líða og óskum stuðningsmönnum velfarnaðar á nýju ári.  Knattspyrnudeild vill þakka stuðningsmönnum okkar fyrir góðan stuðning á árinu og samstarfs- og styrkarðilum deildarinnar fyrir samvinnuna.

Árið 2014 var að hluta tileinkað fyrstu Íslandsmeisturum Keflavíkur en fimmtíu ár voru liðin frá fyrsta meistaratitli félagsins árið 1964.  Leikmenn fyrsta meistaraliðsins voru m.a. heiðursgesti á bikarúrslitaleiknum ásamt bikarmeisturum KR árið 1964 eins og sjá má á myndunum hér að neðan.  Stjórn Knattspyrnudeildar vill þakka leikmönnum 1964-liðsins sérstaklega fyrir sinn þátt á liðnu ári og ánægjulega samveru.

Gleðilegt ár!