Fréttir

Sveindís Jane á reynslu til Kristianstad
Knattspyrna | 3. október 2016

Sveindís Jane á reynslu til Kristianstad

Sveindís Jane Jónsdóttir, sem slegið hefur rækilega í gegn með kvennaliði Keflavíkur í sumar, er á leið til æfinga með sænska úrvalsdeildarliðinu Kristianstad.

Sveindís verður í viku tíma við æfingar hjá félaginu, en hún heldur út á mánudagskvöld. Þjálfari Kristianstad er Íslendingurinn Elísabet Gunnarsdóttir og Sif Atladóttir leikur með liðinu. Með Sveindísi í för verða þjálfarar hennar í meistaraflokki Keflavíkur, Gunnar Magnús Jónsson og Haukur Benediktsson.

Spennandi verður að fylgjast með þessari 15 ára stúlku á komandi misserum en Sveindís er án efa ein allra efnilegasta knattspyrnustúlka landsins.