Fréttir

Sumarnámskeið 2 hjá 8. flokki
Knattspyrna | 28. júní 2017

Sumarnámskeið 2 hjá 8. flokki

Sumarnámskeið 2 hjá 8. flokki Keflavíkur hefst mánudaginn 3. júlí.

Skráning:  Sendið skráningu á neðangreint netfang með upplýsingum um nafn og kennitölu barns. Staðfesting á skráningu verður send til baka.

Aldur: Piltar og stúlkur fædd 2011, 2012 og 2013.

Æfingatími: mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:15 – 17:15.

Æfingatímabil: 
- 3. júlí - 20. júlí (12 æfingar)
- Tvær “aukaæfingar” verða 9. og 10. ágúst, rétt fyrir Arion bankamótið (samtals 14 æfingar).

  • Æfingastaður:  Æfingasvæði Keflavíkur, aftan við Reykjaneshöll.
  • Farið verður inn í Reykjaneshöll ef illa viðrar.

Verð: 10.000 kr. fyrir námskeiðið. Ef námskeið 1 var sótt er gjaldið fyrir seinna námskeiðið 6000 kr. Systkinaafsláttur er veittur innan 8. flokks; annað barn greiðir hálft gjald, þriðja barn frítt.

Mót: Farið verður á frábært Arion bankamót Víkings, helgina 12. – 13. ágúst (spilað annan hvorn daginn).

Þjálfarar: Gunnar Magnús Jónsson, íþróttafræðingur og Ragnar Steinarsson íþróttafræðingur, auk aðstoðar frá unglingum úr vinnuskólanum.

Allar nánari upplýsingar:
8flokkur@keflavik.is