Fréttir

Sumaræfingar hjá 8. flokki
Knattspyrna | 19. maí 2020

Sumaræfingar hjá 8. flokki

Knattspyrnuæfingar hjá 8. flokki Keflavíkur hefjast þriðjudaginn 9. júní.

Skráning:  Fyllið út skráningu á eftirfarandi vefslóð: https://forms.gle/VwQDPdsHwnT232Ri7
Staðfesting á skráningu verður send til baka áður en æfingar hefjast.

Aldur: Piltar og stúlkur fædd 2014, 2015 og 2016.
Æfingatími: mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:10 – 17:10.
Æfingatímabil: Í sumar verður boðið upp á tvö námskeið.

Námskeið 1: 
- 9. júní – 25. júní (10 æfingar)
Námskeið 2: 
- 30. júní – 15. júlí (10 æfingar)

Tvær “aukaæfingar” verða 12. og 13. ágúst, rétt fyrir Arion bankamótið (samtals 12 æfingar).

Æfingastaður Æfingasvæði Keflavíkur, aftan við Reykjaneshöll.
Farið verður inn í Reykjaneshöll ef illa viðrar.

Verð: 12.000 kr. fyrir námskeiðið.
Ef bæði námskeið eru sótt er gjaldið fyrir seinna námskeiðið 7000
 kr. 
Systkinaafsláttur er veittur innan 8. flokks; annað barn greiðir hálft gjald, þriðja barn frítt.

Mót: Farið verður á Arion bankamót Víkings, helgina 15. – 16. ágúst (spilað annan hvorn daginn).

Þjálfarar:
Gunnar Magnús
 Jónsson, íþróttafræðingur
Ragnar Steinarsson íþróttafræðingur
Auk þess verða aðstoðaþjálfarar
 frá unglingum úr vinnuskólanum.

Allar nánari upplýsingar:
8flokkur@keflavik.is

 
SJÁUMST HRESS Í FÓTBOLTA Í SUMAR