Fréttir

Sumaræfingar 8. flokks að hefjast
Knattspyrna | 30. maí 2019

Sumaræfingar 8. flokks að hefjast

Knattspyrnuæfingar hjá 8. flokki Keflavíkur hefjast þriðjudaginn 11. júní.

Skráning:  Fyllið út skráningu á eftirfarandi vefslóð:
https://forms.gle/e1w48pzi5r1TcQeCA 

Staðfesting á skráningu verður send til baka.

Aldur: Piltar og stúlkur fædd 2013, 2014 og 2015.

Æfingatími: mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:10 – 17:10.

Æfingatímabil: Í sumar verður boðið upp á tvö námskeið.

Námskeið 1:
11. júní – 27. júní (10 æfingar)

Námskeið 2:
2. júlí – 17. júlí (10 æfingar)

Tvær “aukaæfingar” verða 14. og 15. ágúst, rétt fyrir Arion bankamótið (samtals 12 æfingar).

Æfingastaður Æfingasvæði Keflavíkur, aftan við Reykjaneshöll.

Farið verður inn í Reykjaneshöll ef illa viðrar.

Verð: 12.000 kr. fyrir námskeiðið. Ef bæði námskeið eru sótt er gjaldið fyrir seinna námskeiðið 7000 kr. Systkinaafsláttur er veittur innan 8. flokks; annað barn greiðir hálft gjald, þriðja barn frítt.

Mót: Farið verður á Arion bankamót Víkings, helgina 17. – 18. ágúst (spilað annan hvorn daginn).

Þjálfarar:
Gunnar Magnús
 Jónsson, íþróttafræðingur
Ragnar Steinarsson íþróttafræðingur
Auk þess verða aðstoðaþjálfarar
frá unglingum úr vinnuskólanum.

Allar nánari upplýsingar:
8flokkur@keflavik.is

 
SJÁUMST HRESS Í FÓTBOLTA Í SUMAR !!