Fréttir

Stefán í Keflavík
Knattspyrna | 19. mars 2015

Stefán í Keflavík

Markvörðurinn Stefán Guðberg Sigurjónsson er genginn í raðir Keflavíkur og hefur gert tveggja ára samning við félagið.  Hann er fæddur árið 1987 og er 26 ára gamall.  Stefán er Keflvíkingur en þess má geta að hann er sonur Sigurjóns Sveinssonar sem lék með Keflavík á árunum 1980-1991 með hléum.  Stefán lék með yngri flokkum Keflavíkur en hefur undanfarin ár verið í herbúðum Þróttar Vogum og Njarðvíkur og á að baki nokkra leiki í neðri deildunum.

Við bjóðum Stefán velkominn í hópinn.