Fréttir

Pollamótsmeistarar KSÍ 2014
Knattspyrna | 25. ágúst 2014

Pollamótsmeistarar KSÍ 2014

Á dögunum varð 6. flokkur Keflavíkur Pollamótsmeistarar KSÍ í keppni A- og C-liða.  Strákarnir stóðu sig frábærlega og var Keflavík með sex lið í úrslitakeppninni sem er í raun Íslandsmót 6. flokks. Keppt var í fimm manna bolta gegn bestu liðum landsins, fyrst í riðlakeppni og svo í úrslitakeppni.  A-lið Keflavíkur sigraði eftir hörkukeppni hér heima á Iðavöllum þriðjudaginn 19. ágúst og svo sigruðu Keflvíkingar keppni C-liða á Selfossi fimmtudaginn 21. ágúst.
 
Þetta er frábær árangur hjá drengjunum sem voru Keflavík svo sannarlega til sóma.