Fréttir

Orrinn verður í Keflavík
Knattspyrna | 2. nóvember 2016

Orrinn verður í Keflavík

Einar Orri hefur gert tveggja ára samning við Keflavík.  Einar sem er mikill Keflvíkingur hefur allan sinn feril spilað fyrir Keflavík og spilað 163 meistaraflokksleiki í deild og bikar og skorað í þeim 10 mörk.

Það er mikill fengur fyrir Keflavík að hafa landað framlengingu við Einar sem hefur mikið og stórt Keflavíkurhjarta og ætlar að berjast til síðasta blóðdropa til þess að koma liðinu upp um deild að ári.