Fréttir

Myndir frá yngri flokka mótum
Knattspyrna | 27. nóvember 2014

Myndir frá yngri flokka mótum

Við vekjum athygli á því að hægt er að panta myndir frá yngri flokka mótunum sem eru haldin í Reykjaneshöllinni þessar vikurnar.  Það er fyrirtækið SportHero sem sér um myndatökur á mótunum.  Hægt er að skoða myndirnar á heimasíðu þeirra og panta myndir í mismunandi stærðum.  Nú síðast bættust við myndir frá mótum 7. flokks drengja og frá 5. flokks drengja.  Áður voru komnar myndir frá 5. og 6. flokki stúlkna og frá 6. flokki drengja.