Fréttir

Mót hjá 7. flokki á laugardag
Knattspyrna | 14. nóvember 2014

Mót hjá 7. flokki á laugardag

Eins og undanfarin ár stendur Keflavík fyrir mótum fyrir yngri flokka karla og kvenna í haust.  Mótin fara fram í Reykjaneshöllinni og er lögð mikil áhersla á að tímasetningar standist og mótin gangi hratt og vel fyrir sig.  Næsta mót verður laugardaginn 15. nóvember en þá leikur 7. flokkur karla.

Við hvetjum foreldra og aðra til að mæta og fylgjast með en hér er leikskrá mótsins (PDF-skjal).  Í leikskránni er yfirlit yfir leiki, tímasetningar og hagnýtar upplýsingar um mótið, bílastæði o.fl.