Fréttir

Minningarmót Ragnars Margeirssonar
Knattspyrna | 21. febrúar 2015

Minningarmót Ragnars Margeirssonar

Hið árlega minningarmót um Ragnar Margeirsson verður haldið í Reykjaneshöll laugardaginn 21. febrúar. Mót þetta hefur verið vel sótt undanfarin ár og mikil ánægja verið á meðal eldri drengja, sem hafa sótt mótið.  Aðstandendur viðburðarins, sem kalla sig „vinir Ragga Margeirs“ hafa tekið upp þann sið að safna fé og láta afraksturinn ganga til góðs málefnis. Að þessi sinni verður afrakstur mótsins látinn ganga til þess að styðja fjölskyldu fyrrverandi knattspyrnumanns sem á barn sem glímir við langvinn veikindi.

Þetta verður í ellefta sinn sem komið er saman til að minnast Ragnars Margeirssonar, fyrrverandi knattspyrnusnillings, en hann lést langt fyrir aldur fram í febrúar á árinu 2002.   

Vinir Ragga Margeirs bjóða öllum að koma við í Reykjaneshöllinni á laugardaginn og fylgjast með fyrrverandi knattspyrnusnillingum leika listir sínar og eiga saman góða stund. Mótið hefst kl. 16:15 og lýkur um kl. 18:45. 

Þeir sem vilja láta fé af hendi rakna af þessu tilefni og styrkja gott málefni, geta gert það með því að leggja inná reikning nr. 121-05-10026, kt. 180161-4229.

Með boltakveðju
Vinir Ragga Margeirs

Hér má nálgast mótaskrá mótsins.