Fréttir

Mfl. kvenna: 8 - liða úrslit á laugardag kl. 14:00
Knattspyrna | 2. september 2016

Mfl. kvenna: 8 - liða úrslit á laugardag kl. 14:00

Á laugardaginn taka stelpurnar í Keflavík á móti Tindastóli í 8 - liða úrslitum um sæti í Pepsi deild að ári. Leikurinn fer fram á Nettóvellinum í Keflavík og hefst kl. 14:00. Seinni leikur liðanna fer svo fram á miðvikudaginn á Sauðárkróki. Það lið sem sigrar einvígið leikur gegn HK/Víking eða Haukum um sæti í Pepsi deildinni. 
Nú er um að gera að mæta á völlinn og hvetja stúlkurnar til sigurs.