Fréttir

Máni bætist í þjálfarateymið
Knattspyrna | 18. nóvember 2014

Máni bætist í þjálfarateymið

Þorkell Máni Pétursson verður aðstoðarþjálfari Keflavíkur en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning.  Hann verður annar af tveimur aðstoðarþjálfurum meistaraflokks karla ásamt Gunnari Magnúsi Jónssyni.  Máni er okkur auðvitað að góðu kunnur en hann var aðstoðarþjálfari liðsins seinni hluta sumars 2013. Hann hefur langa reynslu af þjálfun yngri flokka og hefur m.a. starfað hjá Fjölni, Haukum og Stjörnunni.  Hann þjálfaði einnig meistaraflokk kvenna hjá Stjörnunni árin 2008 og 2009.

Við bjóðum Þorkel Mána velkominn aftur til Keflavíkur.