Fréttir

Léttklæddir Spánarfarar
Knattspyrna | 7. apríl 2014

Léttklæddir Spánarfarar

Eins og áður hefur komið fram er Keflavíkurliuðið statt á San Pedro del Pinatar á Spáni þar sem liðið undirbýr sig fyrir átökin framundan.  Æft hefur verið að fullum krafti og um helgina var veðrið það gott að menn voru orðnir léttklæddir.  Myndir frá Spánarferðinni eru í myndasafni og á nýjustu myndunum má sjá fararstjórnina í afslöppun, sjúkraþjálfarann í aksjón og léttklædda leikmenn við æfingar.  Það er liðsstjórinn Jón Örvar Arason sem tekur myndir í ferðinni og við bætum myndum í safnið um leið og þær berast að utan.