Fréttir

Leonard skrifar undir
Knattspyrna | 1. febrúar 2016

Leonard skrifar undir

Leonard Sigurðsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Keflavík sem gildir út árið 2018.  Leonard er 19 ára gamall sóknarmaður og er uppalinn hjá félaginu.  Hann hefur þegar leikið 13 leiki í efstu deild og skoraði eitt mark í deildinni síðasta sumar.  Leonard hefur einnig leikið nokkra leiki með Njarðvík sem lánsmaður.

Á myndinni með fréttinni er Jón G. Benediktsson, formaður Knattspyrnudeildar, ásamt Leonard.