Fréttir

Leikur gegn Þór í Lengjubikarnum
Knattspyrna | 14. apríl 2014

Leikur gegn Þór í Lengjubikarnum

Keflavík er komið í 8 liða úrslit Lengjunbikarsins eftir að hafa endað í 3. sæti A-riðils í keppninni.  Þetta varð ljóst eftir að keppni í riðlinum lauk um helgina.  Í 8 liða úrslitum mætum við Þór og fer leikurinn fram á miðvikudaginn í Boganum á Akureyri.  Liðið sem sigrar í þeim leik mætir Breiðabliki eða Víking R. í undanúrslitum mánudaginn 21. apríl, annan í páskum.

Á myndinni með fréttinni er byrjunarliðið gegn BÍ/Bolungarvík.