Fréttir

Leiknir R. - Keflavík á laugardag kl. 13:00
Knattspyrna | 23. september 2016

Leiknir R. - Keflavík á laugardag kl. 13:00

Þá er komið að síðasta leik sumarsins í Inkasso-deildinni en það er útileikur gegn Leikni R. á laugardaginn.  Leikurinn verður á Leiknisvelli og þar verður flautað til leiks kl. 13:00.  Fyrir leikinn er Keflavík í 3. sæti deildarinnar með 34 stig en Leiknismenn sitja í 6.-7. sæti með 28 stig.  Það er ekki að miklu keppa en okkar menn geta þó tryggt sér 3. sætið með sigri í leiknum.  Dómari á Leiknisvellinum verður Jóhann Gunnar Guðmundsson, aðstoðardómarar þeir Daníel Ingi Þórisson og Helgi Sigurðsson en Viðar Helgason er svo eftirlitsmaður KSÍ.