Fréttir

Landsbankinn áfram aðalbakhjarl Knattspyrnudeildar
Knattspyrna | 5. desember 2014

Landsbankinn áfram aðalbakhjarl Knattspyrnudeildar

Landsbankinn verður aðalbakhjarl Knattspyrnudeildar Keflavíkur næstu tvö árin en samningur þess efnis var undirritaður í vikunni. Landsbankinn mun styðja þétt við bakið á meistaraflokkum karla og kvenna sem og yngri flokkum félagsins.

„Landsbankinn hefur verið helsti styrktaraðili knattspyrnunnar í Keflavík frá því á árinu 2011 en bankinn tók við því kefli af Sparisjóðnum í Keflavík. Samstarf knattspyrnudeildar og Landsbankans hefur verið afar gott á þessum tíma og hefur samstarfssamningurinn verið knattspyrnudeildinni hagfelldur,” segir Þorsteinn Magnússon formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur.

„Forsvarsmenn Landsbankans hafa sýnt samstarfinu mikinn áhuga og lýst vilja til að styðja knattspyrnuna í Keflavík áfram. Bankinn hefur lýst yfir stuðningi við það öfluga forvarnar- og uppbyggingarstarf sem unnið er hér hjá okkur í deildinni og undirritun styrktarsamningsins er staðfesting á því. Það er okkur í knattspyrnudeildinni mikið tilhlökkunarefni að starfa áfram með Landsbankanum og væntum við mikils af samstarfinu,” segir Þorsteinn.

„Við erum afskaplega ánægð með að vera bakhjarl Keflavíkurliðanna og hlökkum til áframhaldandi samstarfs við knattspyrnudeildina. Það er markmið okkar að vera dyggur samherji íþróttastarfs á Suðurnesjum. Knattspyrnan í Keflavík á sér langa og mikla sögu sem byggir m.a. á góðu barna- og unglingastarfi. Við höfum komið með meiri sýnileika inn í okkar samstarf á undanförnum misserum og erum afar stolt af því. “ segir Einar Hannesson, útibússtjóri Landsbankans í Reykjanesbæ.

Á myndinni að neðan undirrita Einar Hannesson útibússtjóri Landsbankans í Reykjanesbæ og Þorsteinn Magnússon formaður Knattspyrnudeildar samninginn.  Myndina tók Jón Örvar Arason þegar samningurinn var undirritaður í jólaboði Knattspyrnudeildar.